Fara beint í efni

Vaktin, launin og yfirsýnin.
Á einum stað.

Vaktaplan, stimpilklukka, launakeyrsla og ráðningarsamningar. Og launakostnaður sem hlutfall af veltu, í rauntíma.

Allt sem vaktin þarf.

Vaktaplan á korteri.

Dragðu vaktir til, afritaðu síðustu viku eða biddu gervigreindina um plan sem passar veltuspánni. Launakostnaðurinn reiknast á meðan.

Vaktaplan vikunnar: vakt dregin á milli starfsmanna

Stimplað í símanum.

Eða á spjaldtölvu við innganginn. Staðsetning staðfest ef þú vilt.

VAKTO-appið: á vakt síðan 05:38, stimpla út

Frávik með krónutölu.

Hver mætti seint, hver fór fyrr og hvað það kostaði.

Tímaskráning með frávikum

Laun eftir kjarasamningi.

Álag, yfirvinna og uppbót reiknuð. Beint í Payday eða DK.

Launakeyrsla mánaðarins

Spjaldtölva við innganginn.

Starfsfólk ýtir á nafnið sitt og slær inn sinn kóða, eða skannar skírteinið úr símanum. Allir sjá hver er á vakt og stimplunin fer beint í tímaskráninguna.

Stimpilklukkan á spjaldtölvu: allt starfsfólk og hver er á vakt

Spjall fyrir hópinn.

Rásir per deild og stað. Enginn Messenger-hópur með fyrrverandi starfsfólki.

Spjallrásir í VAKTO-appinu

Kynntu þér VAKTO.

Skýrslur sem skipta máli.

Laun % af veltu per mánuð, kostnaður per deild, yfirvinna, veikindi og mæting. Sæktu í Excel eða PDF, eða biddu VAKTO AI um skýrsluna.

Innsýn í VAKTO: laun 31,1 % af veltu í október, velta 19,3 m.kr. og launakostnaður 6,0 m.kr.

Vaktirnar í vasanum.

Starfsfólk sér planið sitt, sækir um lausar vaktir og býður vaktir í skiptum. Spjallið er á sama stað.

Vaktir vikunnar í appinu
Spjallrásir í appinu

Fréttaveita fyrir vinnustaðinn.

Nýr matseðill, breyttur opnunartími, mynd úr eldhúsinu. Festu það mikilvæga efst svo það týnist ekki.

Fréttaveitan í appinu

Launaseðill sem stenst.

Dagvinna, álag og yfirvinna sundurliðuð. Líka þegar mánuðurinn var 0 tímar og starfsmaðurinn þarf staðfestingu.

Launaseðill úr VAKTO

VAKTO AI

Hey VAKTO, …

Segðu hvað þarf að gera, eins og við vaktstjóra. VAKTO AI les þín gögn, svarar með þínum tölum og undirbýr breytinguna.

Tillaga VAKTO AI: Moon færður á kvöldvakt á laugardag, launakostnaður óbreyttur 27,4%

Vaktaplan

  • Hey VAKTO, gerðu vaktaplan fyrir næstu viku í eldhúsinu. Allir fá að minnsta kosti tvo frídaga og alltaf þrír á vakt.

    Setur upp vikuna fyrir eldhúsið: þrír á vakt alla daga og allir með minnst tvo frídaga. Aðrar deildir haldast óbreyttar.

  • Hey VAKTO, opnaðu vaktir alla daga næstu viku milli 17 og 23.

    Stofnar sjö lausar vaktir. Starfsfólk fær tilkynningu og sækir um í appinu.

  • Hey VAKTO, samþykktu fríbeiðnina hennar Önnu.

    Finnur beiðnina, sýnir dagana og samþykkir. Anna fær tilkynningu.

Starfsfólk

  • Hey VAKTO, hver er ekki mættur í dag?

    Sýnir hverjir á plani dagsins hafa ekki stimplað sig inn, og hve seint þeir eru.

  • Hey VAKTO, Jón gleymdi að stimpla sig út. Settu útstimplun kl. 23:00.

    Setur útstimplun hjá Jóni kl. 23:00 og tímaskráningin lagast.

  • Hey VAKTO, sendu ráðningarsamninginn aftur á Pétur Karlsson.

    Sendir undirritunarbeiðnina aftur á netfangið hans Péturs.

Tölur

  • Hey VAKTO, af hverju var laun % hærra í september en í ágúst?

    Ber mánuðina saman: velta, tímar, yfirvinna og álag, og nefnir helstu ástæðurnar.

  • Hey VAKTO, hver vann mesta yfirvinnu í mánuðinum?

    Raðar starfsfólki eftir yfirvinnutímum og hvað þeir kostuðu.

  • Hey VAKTO, láttu mig vita ef einhver fer yfir 180 tíma í mánuðinum.

    Setur upp vaktara: þú færð póst við 90 % og aftur ef einhver fer yfir, líka miðað við planið.

  • Hey VAKTO, sendu mér yfirvinnuskýrslu alla mánudaga.

    Skýrsla síðustu viku kemur í póstinn kl. 8 á mánudögum, með Excel-skjali.

Ekkert breytist án þín. VAKTO AI spyr alltaf áður en hann breytir nokkru. Þú sérð tillöguna og ýtir á Staðfesta.

Fyrir stjórnendur og vaktstjóra. 25 spurningar á mánuði innifaldar.

Fallegt í birtu. Líka á næturvaktinni.

Kerfið fylgir stillingu tækisins. Dragðu til að bera saman.

Vaktaplan í ljósu þema
Vaktaplan í dökku þema
Appið í dökku þema: á vakt

Starfsfólkið fær appið.

Vaktirnar, stimplun, áætluð laun, orlofsstaða, frí og vaktaskipti. Og spjall og fréttaveita fyrir allan hópinn.

  • Android í dag, iPhone væntanlegt
  • Íslenska, enska og víetnamska
  • Tilkynning þegar planið breytist
Sækja á Google PlayApp Storevæntanlegt
Fréttaveita í appinu

Samningur á mínútu, undirritaður á annarri.

VAKTO fyllir út ráðningarsamning úr gögnum starfsmannsins, eftir formi Vinnumálastofnunar. Báðir skrifa undir í símanum og fá undirritað eintak í pósti.

  • Fylgir formi Vinnumálastofnunar, á íslensku og ensku
  • Undirritun með kóða í pósti eða rafrænum skilríkjum
  • Fingrafar skjals og undirritunarskrá fylgja
  • Launaseðlar og tímaskrár í sama stíl
Fyrsta síða ráðningarsamnings: Kaffi Krónan ræður Ha Vu til starfa
Undirritað rafrænt
KAFFI KRÓNAN EHF.kt. 550101-2210
STARFSMAÐUR
Dalya R.
STAÐAÞjónn
KENNITALA040399-3309
NR.#4132
VAKTO-4132-KK · skannaðu á stimpilklukku

Starfsmannaskírteinið er í símanum.

Í Apple og Google Wallet, með mynd, stöðu og QR-kóða. Kóðinn stimplar inn á spjaldtölvunni við innganginn, án þess að slá inn PIN.

Eitt verð. Allt kerfið.

9.990 kr/mán

5 virkir starfsmenn innifaldir.
1.490 kr á hvern virkan starfsmann umfram.

Án VSK. Þú borgar aðeins fyrir þá sem unnu í mánuðinum. Undirskrift með rafrænum skilríkjum 490 kr. VAKTO AI: 25 spurningar á mánuði innifaldar, allt að 500 með viðbót á 1.990 kr/mán. 15% afsláttur ef greitt er árlega. 14 daga frí prufa, engin binding.

Prófa frítt

Fáðu kynningu á vinnustaðinn.

Við komum til ykkar og kynnum VAKTO fyrir stjórnendum og starfsfólki. Frítt og án skuldbindingar.

Frá sömu smiðju. BGL Ventures, fyrirtækið á bak við VAKTO, smíðar líka INVENTRA: rekstrarkerfi og gervigreind sem minnkar rýrnun hjá framleiðendum ferskvöru.inventra.is →